10.09.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Gerir nýjan samning eftir sögulegt afrek í sumar

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Hollenski þjálfarinn Dick Advocaat hefur skrifað undir nýjan eins árs samning við fótboltasamband Curacao og mun hann því stýra landsliðinu í Þjóðadeild CONCACAF.
Advocaat, einn farsælasti þjálfari Hollands, tók við landsliði Curacao fyrir tveimur árum og kom því á HM í fyrsta sinn í sögunni.
Curacao varð þar með fámennasta þjóðin til að taka þátt í mótinu en þar búa aðeins um 156 þúsund manns. Þar með tók Curacao metið af Íslandi frá 2018.
Liðið tapaði fyrir Fílabeinsströndinni og Þýskalandi í riðlakeppninni en náði ótrúlegu markalausu jafntefli gegn Ekvador.
Samningur Advocaat rann út að mótinu loknu en hann hefur nú framlengt um eitt ár og mun stýra liðinu í Þjóðadeildinni.
„Við höfum afrekað eitthvað sérstakt saman og ég hlakka til að byggja áfram á því með leikmönnunum og þjálfurunum,“ sagði Advocaat.

?? ???????????????? ???????????????????????????????? ???????????????????? ???????????????? ???????????? ???????????????? ????????????????!
— Curaçao National Football Team (@TheBlueWaveFFK) September 9, 2026
FFK and head coach Dick Advocaat have extended their partnership through 31 July 2027. ????????
Under Advocaat’s leadership, Curaçao has made important strides on the international stage. With this extension,… pic.twitter.com/uJXX98iYOz