Fotbolti.net
10.09.26 - 16:30
Elvar Geir Magnússon

Jaissle telur sig fá ósanngjarna meðhöndlun dómara

Jaissle lifir sig vel inn í leikinn.

Jaissle lifir sig vel inn í leikinn.

Canon

Mynd: EPA

Matthias Jaissle, stjóri Newcastle, segir skrítið að hann hafi fengið gult spjald fyrir hegðun á hliðarlínunni þegar aðrir stjórar sem hegða sér eins eru ekki spjaldaðir.

Jaissle er mjög líflegur á hliðarlínunni í 2-2 jafntefli gegn Bournemouth um síðustu helgi og fjórði dómarinn þurfti nokkrum sinnum að minna hann á að fara ekki út fyrir boðvanginn.

Jaissle fékk svo gult spjald á 70. mínútu en eftir leikinn sagði hann þessa reglu tilgangslausa ef hann væri bara að styðja og gefa leiðbeiningar til síns liðs.
„Ég var vonsvikinn og lét það skýrt í ljós. Ef þú ert 20 sentimetrum fyrir utan boðvanginn og ert bara að hvetja og styðja eigið lið á jákvæðan hátt á það ekki að vera gult spjald. Líka þegar horft er á samanburð við nokkra af kollegum mínum," segir Jaissle.

Jaissle er eini stjórinn sem hefur fengið gult í fyrstu umferðum ensku úrvalsdeildarinnar og telur sig ekki fá sanngjarna meðhöndlun frá dómurum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.