10.09.26 - 23:16
Brynjar Ingi Erluson
Kane kom sér í fámennan hóp

Harry Kane skoraði áttunda Meistaradeildarleikinn í röð

Mynd: EPA

Harry Kane, framherji Bayern München, kom sér í fámennan en afar góðan félagsskap þegar hann skoraði í 5-0 sigri liðsins á Bodö/Glimt í Meistaradeildinni í kvöld.
Kane skoraði annað mark Bæjara á 61. mínútu eftir aukaspyrnu Michael Olise og hefur þar með skorað í átta Meistaradeildarleikjum í röð.
Aðeins Cristiano Ronaldo, Robert Lewandowski og Ruud van Nistelrooy höfðu áður náð að skora í svo mörgum leikjum í röð í keppninni.
Ronaldo og Lewandowski hafa báðir afrekað það tvisvar. Ronaldo skoraði í átta leikjum í röð tímabilið 2013-2014 og náði síðar ellefu leikja markahrinu. Lewandowski skoraði í níu leikjum í röð frá 2019 til 2020 og aftur frá 2020 til 2021.
Van Nistelrooy skoraði einnig í níu leikjum í röð með Manchester United tímabilið 2002-2003.
Kane getur því jafnað ellefu leikja met Ronaldo ef hann skorar í næstu þremur leikjum, gegn Viking, Arsenal og Atlético.

8 - Harry Kane is one of only four players to score in 8+ consecutive appearances in the UEFA Champions League, along with:
— OptaJoe (@OptaJoe) September 10, 2026
Cristiano Ronaldo (x2)
Robert Lewandowski (x2)
Ruud van Nistelrooy
Machine. pic.twitter.com/rxTnM46Djr