Fotbolti.net
10.09.26 - 05:55
Brynjar Ingi Erluson

Meistaradeildin í dag - Man Utd snýr aftur í deild þeirra bestu

Man Utd byrjar gegn Sabah

Man Utd byrjar gegn Sabah

Canon

Mynd: EPA

Fyrstu umferð í deildarkeppni Meistaradeildar Evrópu lýkur í kvöld með sex leikjum.
Tveir leikir hefjast klukkan 16:45. Hollandsmeistarar PSV taka á móti Úkraínumeisturum Shakhtar og Fenerbahce fær Roma í heimsókn til Tyrklands.

Síðustu fjórir leikirnir hefjast klukkan 19:00. Þýskalandsmeistarar Bayern München mæta Bodö/Glimt sem hefur gert það gott í Evrópu undanfarin ár.

Manchester United snýr aftur í Meistaradeildina og tekur á móti nýliðum Sabah frá Aserbaísjan. Slavia Prag fær frönsku bikarmeistarana í Lens í heimsókn og lærisveinar Cesc Fabregas í Como mæta RB Leipzig.

Leikir dagsins:
16:45 PSV - Shakhtar D
16:45 Fenerbahce - Roma
19:00 Bayern - Bodö/Glimt
19:00 Man Utd - Sabah FK
19:00 Slavia Prag - Lens
19:00 Como - RB Leipzig
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.