Fotbolti.net
10.09.26 - 22:42
Brynjar Ingi Erluson

Myndband: Vandræðalegasta viðtal ársins?

Eftirsóttur leikmaður en sjónvarpsmenn munu líklega reyna forðast það að taka fleiri viðtöl við hann

Eftirsóttur leikmaður en sjónvarpsmenn munu líklega reyna forðast það að taka fleiri viðtöl við hann

Canon

Mynd: EPA

Michael Olise er líklega afslappaðasti leikmaður Evrópuboltans, jafnvel svo að það virðist hreinlega vera honum drullusama um allt, en fréttamaður DAZN lenti í mesta basli með að fá eitthvað upp úr honum eftir 5-0 stórsigur Bayern á Bodö/Glimt í kvöld.
Olise var langbesti maður vallarins, skoraði tvö mörk undir lokin og gaf eina stoðsendingu auk þess að eiga þátt í öðru marki.

Frakkinn hefur verið sjóðandi heitur síðan hann kom til Bayern frá Crystal Palace fyrir tveimur árum og verið orðaður við Real Madrid, en það gekk illa að fá hann til að ræða eigin frammistöðu eftir leikinn.

Fréttamaður DAZN spurði Olise meðal annars hvernig það væri að skora annað eins glæsimark og það fyrra, þegar hann lét vaða fyrir utan teig, en fékk fátt um svör.

„Ég veit það ekki,“ svaraði Olise.

Fréttamaðurinn reyndi áfram að fá eitthvað meira upp úr honum en Frakkinn sagðist einfaldlega hafa skotið og skorað.

Að lokum benti fréttamaðurinn honum á að hann væri að gera sér erfitt fyrir í viðtalinu og spurði hvað veitti honum ánægju. Olise virtist hins vegar líta svo á að viðtalinu væri lokið.



Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.