10.09.26 - 17:43
Brynjar Ingi Erluson
Nýr leikmaður meistaranna á mörg gælunöfn - „White kallar mig grískt salat“

Christos Tzolis í leik með Arsenal

Mynd: EPA

Christos Tzolis í leik með Arsenal

Mynd: EPA
Liðsfélagar Christos Tzolis hjá Arsenal virðast eiga í mesta basli með nafnið hans og hafa því gefið honum ýmis gælunöfn sem fá að heyrast á æfingum og í leikjum.
Tzolis kom til Arsenal frá Club Brugge í sumar eftir að hafa gert frábæra hluti í Belgíu. Hann hefur farið vel af stað hjá Englandsmeisturunum og fest sig í sessi á vinstri kantinum.
Hann er fæddur og uppalinn í Thessaloniki í Grikklandi og lék með Sverri Inga Ingasyni hjá PAOK og síðar Ísaki Bergmanni Jóhannessyni hjá Fortuna Düsseldorf.
Tzolis var spurður út í gælunöfnin sín í klefanum í viðtali við Sky Sports. Þau eru greinilega nokkur og félagar hans hafa verið hugmyndaríkir.
„Ég er með mörg gælunöfn hér. Þeir kalla mig Leonidas, Tzatziki, grískt salat, Mykonos og Santorini. Ég er kallaður öllum mögulegum nöfnum en það er bara Ben White sem kallar mig grískt salat,“ sagði Tzolis.
Félagar hans hjá Arsenal þekkja greinilega sitthvað frá Grikklandi. Margir fótboltamenn verja sumarfríunum á Mykonos og Santorini og þá kannast flestir við tzatziki-sósuna og gríska salatið.
Leonidas var aftur á móti konungur Spörtu á fimmtu öld fyrir Krist. Hann er þekktastur fyrir að hafa leitt 300 Spartverja, ásamt öðrum grískum hermönnum, gegn mun fjölmennari her Persa við Þermópýla.

Christos Tzolis: “I have many nicknames here! They call me Leonidas, Tzatziki Greek Salad, Mykonos, Santorini - they call me everything! It’s only Ben White calling me Greek Salad!” ????????????
— afcstuff (@afcstuff) September 10, 2026
???? @SkySportsPL pic.twitter.com/SYVvNauzVT