10.09.26 - 09:00
Brynjar Ingi Erluson
Reifst við þjálfarann og var sendur í skammarkrókinn - „Því horfði hann á leikinn með mér“

Noa Lang á æfingunni sem um ræðir

Mynd: EPA

Noa Lang á æfingunni sem um ræðir

Mynd: EPA
Hollenski sóknarmaðurinn Noa Lang var utan hóps hjá Napoli gegn Arsenal í Meistaradeildinni í gær vegna agabanns.
Lang hafði komið við sögu í tveimur deildarleikjum með Napoli á tímabilinu en var óvænt utan hóps í gær.
Giovanni Manni, yfirmaður íþróttamála hjá Napoli, sagði skýringuna einfalda. Lang hefði hagað sér illa og verið sendur í skammarkrókinn fyrir leikinn.
Samkvæmt ítölskum miðlum lenti Lang í rifrildi við Max Allegri, þjálfara Napoli, á síðustu æfingunni fyrir leikinn. Hann er sagður hafa látið ófögur orð falla og því verið skilinn eftir utan hóps.
„Lang hagaði sér ekki eins og til er ætlast og horfði því á leikinn með mér. Hann baðst afsökunar fyrir framan hópinn og þjálfarann. Málinu er lokið og hann verður klár á morgun (í dag),“ sagði Manni í gær.
Napoli tapaði leiknum 1-0 með fallegu marki Martin Ödegaard á lokakafla leiksins. Ítalska liðið mætir Bologna í deildinni á sunnudag og ætti því Lang að vera til taks í þeim leik.