Fotbolti.net
10.09.26 - 17:50
Brynjar Ingi Erluson

Tyrkneska undrið að framlengja við Madrídinga

Arda Güler verður áfram hjá Real Madrid

Arda Güler verður áfram hjá Real Madrid

Canon

Mynd: EPA

Tyrkneski leikmaðurinn Arda Güler hefur samþykkt að framlengja samning sinn við Real Madrid.
Güler er að skrifa undir nýjan sex ára samning við Real Madrid. Samkomulagið er frágengið og verður tilkynnt um samninginn á næstu dögum, að sögn Fabrizio Romano sem vísar í frétt Diario AS á X.

Þessi 21 árs gamli sóknartengiliður kom til Real Madrid frá Fenerbahce árið 2023 og er á sínu fjórða tímabili hjá félaginu. Hann hefur leikið 116 leiki fyrir Madrídinga.

Güler er talinn einn hæfileikaríkasti leikmaður sem Tyrkir hafa alið af sér og miklar vonir eru bundnar við hann.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.