10.09.26 - 18:42
Brynjar Ingi Erluson
Vonar að nýi leikmaðurinn verði klár

Mynd: Brighton / Fantasy / X

Mynd: Brighton / Fantasy / X
Femi Azeez gæti þreytt frumraun sína með Brighton gegn nýliðum Coventry á sunnudag. Þetta sagði Fabian Hürzeler, stjóri liðsins, í dag.

TENGT EFNI
Brighton náði í Azeez (Staðfest)
Azeez kom til Brighton frá Millwall á lokadegi félagaskiptagluggans en missti af 1-1 jafnteflinu gegn Leeds um helgina vegna meiðsla aftan í læri.
Hürzeler vonast til að hann verði klár í slaginn gegn Coventry.
„Ég vona að hann verði klár í slaginn. Hann æfir að minnsta kosti með hópnum í dag og vonandi gengur allt vel svo ég geti valið hann,“ sagði Hürzeler.
Azeez er 25 ára vængmaður sem hjálpaði Millwall að komast í umspil um sæti í ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð. Hann var jafnframt valinn í lið ársins í B-deildinni.