Bessi Jóhannsson hefur skrifað undir samning við Njarðvík um að leika með liðinu næstu tvö árin.
„Bessi er öllum hnútum kunnugur í Njarðvík en hann spilaði með okkur á láni árið 2020 og erum við mjög ánægð að hafa náð honum aftur til okkar," segir í tilkynningu frá félaginu.
Bessi er miðjumaður sem getur leyst margar stöður á vellinum. Hann er fæddur árið 1996.
Bessi er uppalinn hjá Gróttu en lék einnig með KR í 2. flokki. Hann hafði leikið með Gróttu, Kríu, Njarðvík og KH í meistaraflokki. Í sumar spilaði hann þá með Víkingi Ólafsvík og Gróttu í Lengjudeildinni, næst efstu deild.
Næsta sumar mun hann leik með Njarðvík í 2. deild. Njarðvík hafnaði í sjötta sæti 2. deildar í sumar.
Athugasemdir