Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 10. október 2021 19:59
Brynjar Ingi Erluson
Fjórir leikmenn Man Utd á lista hjá Newcastle
Jesse Lingard gæti farið til Newcastle
Jesse Lingard gæti farið til Newcastle
Mynd: Getty Images
Enska úrvalsdeildarfélagið Newcastle United ætlar að reyna við fjóra leikmenn Manchester United í janúar en það er Daily Mail sem greinir frá.

Mohammed Bin Salman, krónprinsinn í Sádi-Arabíu, fór fyrir fjárfestingahópi sem keypti Newcastle af Mike Ashley á dögunum fyrir 300 milljónir punda.

Newcastle mun hafa nóg á milli handanna og ætlar að styrkja hópinn í janúar en fjórir leikmenn Man Utd eru á listanum.

Það eru þeir Donny van de Beek, Eric Bailly, Anthony Martial og Jesse Lingard.

Allt eru þetta leikmenn sem eiga ekki fast sæti í liði United. Van de Beek og Eric Bailly eru neðarlega í goggunarröðinni á meðan þeir Martial og Lingard hafa gegnt aukahlutverki í liðinu.

Newcastle mun losa sig við Steve Bruce, knattspyrnustjóra félagsins, á næstu dögum og hafa margir stjórar verið orðaðir við stöðuna, þar á meðal Antonio Conte.
Athugasemdir
banner
banner
banner