Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 10. október 2021 18:27
Brynjar Ingi Erluson
Mancini fljótastur í þrjátíu sigra
Roberto Mancini
Roberto Mancini
Mynd: EPA
Roberto Mancini, þjálfari ítalska landsliðsins, vann 30. leik sinn er liðið vann Belgíu 2-1 í leik um bronsið í A-deild Þjóðadeildarinnar í dag.

Mancini tók við landsliðinu í maí árið 2018 og stýrði í kvöld 44. leik sínum.

Á tíma hans þar tapaði liðið ekki í 37 leikjum áður en Ítalir fengu skellinn gegn Spánverjum í undanúrslitum Þjóðadeildarinnar.

Ítalska liðið bætti upp fyrir það í kvöld með 2-1 sigri á Belgíu en þetta var 30. sigur Mancini sem þjálfari liðsins og bætti hann enn eitt metið. Enginn þjálfari hefur verið jafn fljótur í 30 sigra.

Hann hefur samtals unnið 30 leiki, gert ellefu jafntefli og aðeins tapað þremur leikjum.


Athugasemdir
banner