10.10.26 - 16:03
Brynjar Ingi Erluson
Besta deildin: Gils með þrennu gegn Val - Eyjamenn fallnir

Gils Gíslason skoraði þrennu og lagði upp eitt

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

ÍBV er fallið

Mynd: Lukasz Wróbel

Christian Jakobsen skoraði sigurmark Þórs

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hallgrímur Mar skoraði í sigri KA

ÍBV er fallið í Lengjudeildina eftir 1-0 tap fyrir Þór í neðri hluta Bestu deildarinnar í dag. Gils Gíslason stal þá senunni með þrennu í 5-3 sigri FH á Val.
FH-ingar mættu af krafti á Hlíðarenda og Adolf Daði Birgisson kom þeim yfir eftir aðeins tvær mínútur. Kristján Flóki Finnbogason fann Gils Gíslason sem renndi boltanum til hliðar á Adolf og hann skoraði örugglega.
Gestirnir björguðu á línu á 13. mínútu og tvöfölduðu forystuna þremur mínútum síðar. Kjartan Kári Halldórsson tók hornspyrnu sem Birkir Valur Jónsson fleytti áfram á Tómas Orra Róbertsson sem skallaði í netið.
Frederik Schram varði frábærlega frá Gils á 23. mínútu en nokkrum mínútum síðar kom hann engum vörnum við. Gils keyrði þá í gegn, lék á Hólmar Örn Eyjólfsson og setti boltann á milli fóta Frederiks.
Dagur Orri Garðarsson minnkaði muninn fyrir Val eftir að Lúkas Logi Heimisson hafði leikið á Oliver Stefánsson og fundið hann í teignum. Dagur afgreiddi boltann í þaknetið en von Valsara kviknaði aðeins um stund.
Gils tók aftur til sinna ráða og skoraði tvívegis með skömmu millibili. Hann var Valsvörninni erfiður viðureignar allan leikinn og fullkomnaði þrennuna með þessum tveimur mörkum.
Valsarar klóruðu í bakkann á 84. mínútu þegar Jakob Franz Pálsson flikkaði hornspyrnu Tryggva Hrafns Haraldssonar í netið á nærstönginni. Jökull Andrésson gerði síðan slæm mistök í marki FH undir lokin og sendi beint á Shkelzen Veseli. Hann spilaði boltanum á Lúkas Loga, fékk hann aftur og skoraði.
Lengra komst Valur ekki og FH vann 5-3. FH er með 30 stig en Valur er áfram á toppi neðri hlutans með 31 stig.
Eyjamenn fallnir eftir tap á Akureyri
Þór vann lífsnauðsynlegan 1-0 sigur á ÍBV á Akureyri og úrslitin í Garðabæ gerðu það að verkum að Eyjamenn eru fallnir.
Sigurmarkið kom á 30. mínútu og var með furðulegra móti. Ágúst Eðvald Hlynsson sendi fyrir markið og Ari i Haraldstovu Petersen virtist hafa boltann í höndum sér. Hann missti hann hins vegar í Christian Greko Jakobsen og þaðan fór boltinn í netið.
Umdeilt atvik varð þegar Aron Birkir Stefánsson, markvörður Þórs, lenti harkalega á Aroni Lucas Vokes en ekkert var dæmt. Mattias Edeland kom síðan boltanum í netið snemma í síðari hálfleik en markið var dæmt af vegna brots.
Eyjamenn náðu ekki að jafna og með 3-0 sigri KA á Stjörnunni varð fall þeirra staðreynd. ÍBV situr á botninum með 19 stig en Þór er í næstneðsta sæti með 24 stig.
KA sótti þrjú mikilvæg stig í Garðabæ
KA vann öruggan 3-0 sigur á Stjörnunni og er tveimur stigum fyrir ofan fallsæti þegar tvær umferðir eru eftir.
Gestirnir fengu vítaspyrnu á 30. mínútu þegar Guðmundur Baldvin Nökkvason felldi Hallgrím Mar Steingrímsson með klaufalegri tæklingu. Hallgrímur tók spyrnuna sjálfur og skoraði af öryggi í hægra hornið.
Adam Ægir Pálsson bætti við öðru marki nokkrum mínútum síðar eftir frábæran undirbúning Jakobs Snæs Árnasonar.
Stjörnumenn urðu síðan manni færri þegar um tuttugu mínútur voru eftir. Benedikt Warén elti Valdimar Loga Sævarsson uppi og sparkaði hann niður, sem kostaði hann rautt spjald.
Valdimar Logi bætti svo gráu ofan á svart fyrir heimamenn með hörkuskoti í þaknetið. Þar við sat og KA fagnaði mikilvægum sigri í fallbaráttunni.
Stjarnan 0 - 3 KA
0-1 Hallgrímur Mar Steingrímsson ('33 , víti)
0-2 Adam Ægir Pálsson ('38 )
0-3 Valdimar Logi Sævarsson ('70 )
Rautt spjald: Benedikt V. Warén, Stjarnan ('68) Lestu um leikinn
Valur 3 - 5 FH
0-1 Adolf Daði Birgisson ('2 )
0-2 Tómas Orri Róbertsson ('16 )
0-3 Gils Gíslason ('29 )
1-3 Dagur Orri Garðarsson ('50 )
1-4 Gils Gíslason ('56 )
1-5 Gils Gíslason ('58 )
2-5 Jakob Franz Pálsson ('84 )
3-5 Shkelzen Veseli ('90 )
Lestu um leikinn
Þór 1 - 0 ÍBV
1-0 Christian Jakobsen ('30 )

Besta karla - Neðri hluti
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Valur | 25 | -5 | 31 |
| 2 | Stjarnan | 25 | -12 | 31 |
| 3 | FH | 25 | -4 | 30 |
| 4 | KA | 25 | -10 | 26 |
| 5 | Þór | 25 | -33 | 24 |
| 6 | ÍBV | 25 | -16 | 19 |