Fotbolti.net
10.10.26 - 16:20
Brynjar Ingi Erluson

Championship: Andri hélt uppteknum hætti

Andri Lucas skoraði fjórða deildarmark sitt

Andri Lucas skoraði fjórða deildarmark sitt

Canon

Mynd: Blackburn

Andri Lucas Guðjohnsen skoraði fjórða deildarmark sitt fyrir Blackburn Rovers sem vann 2-1 sigur á Cardiff City í ensku B-deildinni í dag.
Framherjinn hefur byrjað tímabilið frábærlega með Blackburn og fylgdi því eftir með góðri frammistöðu í landsleikjatörninni.

Andri var aftur á skotskónum í dag og kom Blackburn yfir á 28. mínútu. Todd Cantwell missti þá boltann frá sér í teignum en Andri var rétt hjá og skoraði örugglega.

Fjórða deildarmarkið og fimmta í öllum keppnum.

Cantwell bætti við öðru marki tíu mínútum síðar. Callum Robinson minnkaði muninn snemma í síðari hálfleik en nær komust mótherjarnir ekki og Blackburn vann 2-1. Liðið er í tólfta sæti með tólf stig.

Burnley og Sheffield United unnu þægilega sigra en Middlesbrough marði 1-0 sigur á Wolves og er nú aðeins tveimur stigum á eftir toppliði Swansea.

Blackburn 2 - 1 Cardiff City
1-0 Andri Gudjohnsen ('28 )
2-0 Todd Cantwell ('38 )
2-1 Callum Robinson ('53 )

Bolton 1 - 2 Stoke City
0-1 Lamine Cisse ('45 )
0-2 Ben Wilmot ('62 )
1-2 Theo Bair ('90 )
Rautt spjald: Maksym Taloverov, Stoke City ('20)

Derby County 1 - 1 Wrexham
1-0 Sammie Szmodics ('9 )
1-1 Ollie Rathbone ('88 )

Middlesbrough 1 - 0 Wolves
1-0 Will Lankshear ('57 )

Preston NE 0 - 1 Millwall
0-1 Camiel Neghli ('79 )

Sheffield Utd 3 - 0 Lincoln City
1-0 Patrick Bamford ('43 )
2-0 Tahith Chong ('52 )
3-0 Patrick Bamford ('77 )

Watford 0 - 4 Burnley
0-1 Jacob Bruun Larsen ('13 )
0-2 Zeki Amdouni ('19 )
0-3 Reo Hatate ('25 )
0-4 Marcus Edwards ('87 )

Championship - karlar

#LiðLmunStig
1Birmingham15+1429
2Middlesbrough15+1129
3Stoke City15+629
4Wolves15+828
5West Brom15+828
6Swansea15+426
7Southampton15+1424
8QPR15+624
9West Ham15+1423
10Sheffield Utd15+222
11Portsmouth15+222
12Norwich15+821
13Blackburn15-121
14Cardiff City15018
15Wrexham15-218
16Millwall15-418
17Bristol City15-818
18Bolton15-917
19Charlton Athletic15-1017
20Watford15-1015
21Lincoln City15-1115
22Burnley15-910
23Derby County15-1610
24Preston NE15-178
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.