Fotbolti.net
10.10.26 - 14:58
Brynjar Ingi Erluson
Ítalski boltinn

Ítalía: Slæm snerting Mikaels varð að frábærri stoðsendingu

Mikael Egill lagði upp fyrra mark Genoa

Mikael Egill lagði upp fyrra mark Genoa

Canon

Mynd: EPA

Genoa 2 - 1 Fiorentina
1-0 Milutin Osmajic ('8 )
2-0 Junior Messias ('15 )
2-1 Johan Vasquez ('73 , sjálfsmark)
Mikael Egill Ellertsson lagði upp fyrra mark Genoa í 2-1 sigri á Fiorentina í Seríu A á Ítalíu í dag.

Framarinn átti gott landsleikjaverkefni með Íslandi og lét strax til sín taka þegar ítalska deildin fór aftur af stað Tæpar átta mínútur voru liðnar þegar hann lagði upp fyrir Milutin Osmajic, þó það hafi ekki verið ætlunin.

Mikael náði þá frákasti í teignum en hitti boltann illa. Það kom ekki að sök því úr varð fyrirtakssending á Osmajic sem skoraði.

Sjö mínútum síðar lagði Osmajic upp annað markið fyrir Junior Messias og Genoa því komið í 2-0. Johan Vasquez varð síðan fyrir því óláni að skora sjálfsmark tuttugu mínútum fyrir leikslok en nær komst Fiorentina ekki.

Genoa er í 17. sæti með fjögur stig en Fiorentina sæti neðar á verri markatölu.

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Roma5+1113
2Inter5+713
3Lazio5+513
4Cagliari5+312
5Milan5+611
6Frosinone5+510
7Juventus5+410
8Como5+310
9Napoli5+17
10Sassuolo507
11Atalanta5-26
12Lecce5-56
13Udinese5-34
14Torino5-34
15Parma5-34
16Monza5-44
17Genoa6-54
18Fiorentina6-84
19Bologna5-32
20Venezia5-90
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.