Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 11. janúar 2019 14:14
Arnar Helgi Magnússon
Gabbiadini til Sampdoria (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Manolo Gabbiadini er genginn til liðs við Sampdoria á Ítalíu frá Southampton. Kaupverðið er ekki gefið upp.

Gabbiadini er 27 ára gamall og tókst að heilla fyrstu vikurnar á Englandi en hann skoraði þá fjögur mörk í sex leikjum.

Hann endaði þó með aðeins 5 mörk í 33 leikjum það tímabilið og þá hefur hann aðeins skorað eitt mark á þessari leiktíð.

Gabbiadini hefur verið orðaður burt frá félaginu síðan í desember en til að byrja með ætlaði Sampdoria einungis að fá kappan á láni, það hefur breyst því að félagið hefur nú fest kaup á leikmanninum.

„Við viljum þakka Manolo fyrir tímann hjá okkur og við óskum honum alls hins besta í framtíðinni," segir í tilkynningu frá Southampton.



Athugasemdir
banner
banner
banner