Helgi Valur Daníelsson sem gekk aftur til liðs við Fylki í janúar í fyrra eftir mörg ár í atvinnumennsku mun spila áfram með félaginu.
Þetta kom fram í tilkynningu sem félagið sendi frá sér núna í morgun.
Þetta kom fram í tilkynningu sem félagið sendi frá sér núna í morgun.
Sumarið 2018 spilaði Helgi 13 leiki í Pepsí deildinni.
Helgi á að baki 33 A landsleiki og hefur spilað erlendis með liðum eins og Peterborough, Oster, Elfsborg, Hansa Rostock, AIK, Belenenses og AGF.
Hann á að baki 33 landsleiki fyrir Íslands hönd.
Fylkir hefur fengið einn leikmann til liðs við sig síðan á síðasta tímabili en Sam Hewson kom frá Grindavík.
Fjórir eru farnir., Ásgeir Börkur Ásgeirsson er að leita sér að liði, Ásgeir Örn Arnþórsson í Aftureldingu, Elís Rafn Björnsson í Stjörnuna
og Jonathan Glenn í ÍBV.
Athugasemdir