Harry Kane er orðinn næst markahæsti leikmaður í sögu Tottenham eftir leik við Everton í bikarnum í gær.
Kane kom inná sem varamaður í bikarslagnum og skoraði eitt af mörkum Tottenham í 5-4 tapi í framlengdum leik.
Kane er af mörgum talinn einn allra besti framherji heims en hann gerir fátt annað en að setja boltann í netið.
Englendingurinn hefur skorað 209 mörk í 318 leikjum fyrir Tottenham og er nú aðeins á eftir Jimmy Greaves.
Greaves skoraði 266 mörk fyrir Tottenham í 379 leikjum en hann spilað með liðinu frá 1961 til ársins 1970.
Kane mun eflaust bætta þetta met á endanum en hann er enn aðeins 28 ára gamall.
Athugasemdir