Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 11. mars 2021 07:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Jovana Milinkovic semur við Sindra (Staðfest)
Fagnar marki með Sindra 2019.
Fagnar marki með Sindra 2019.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sindri á Höfn í Hornafirði hefur samið við hina serbnesku Jovana Milinkovic um að leika með liðinu í 2. deild kvenna í sumar.

Milinkovic, sem getur bæði leyst stöður í vörn og á miðju, hefur áður leikið hér á landi. Frá 2017 til 2018 var hún á Vopnafirði hjá Einherja þar sem hún spilaði 19 leiki í 2. deild kvenna og skoraði þrjú mörk.

Hún fór í Sindra 2019 þar sem hún spilaði 11 leiki og skoraði eitt mark.

Milinkovic hefur einnig leikið í Króatíu og Litháen en síðast spilaði hún í Bosníu-Hersegóvínu.

Á síðasta tímabili hafnaði Sindri í áttunda sæti af níu liðum í Lengjudeildinni.
Athugasemdir
banner
banner