Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   fim 11. mars 2021 18:30
Ívan Guðjón Baldursson
Völsungur fær varnarmann frá Spáni (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Völsungur var að krækja í 29 ára varnarmann frá Spáni sem lék síðast í fjórðu efstu deild þar í landi.

Sá heitir Jamie Agujetas Otero og er fenginn til að hjálpa Húsvíkingum í komandi átökum í 2. deildinni.

Völsungur bjargaði sér hetjulega frá falli í fyrra með þremur sigrum í síðustu þremur umferðum Íslandsmótsins áður en hætt var keppni vegna Covid.

Það verður áhugavert að fylgjast með hvernig Jamie tekst að fóta sig í íslenska boltanum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner