Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 11. maí 2021 23:10
Ívan Guðjón Baldursson
Aron Elís í liði umferðarinnar
Mynd: Getty Images
Aron Elís Þrándarson hefur fundið taktinn með OB í efstu deild danska boltans en hann hefur verið valinn í úrvalslið umferðarinnar í þriðja sinn.

Aron Elís átti góðan leik í 1-0 sigri gegn Álaborg í vikunni og var valinn í lið umferðarinnar hjá Tipsbladet.

OB er nýlega búið að skipta um þjálfara og virðist Aron Elís vera að spila mun betur eftir þjálfaraskiptin.

Aron er 26 ára gamall og raðaði inn mörkunum með Víkingi R. áður en hann var fenginn til Álasundar fyrir rúmum sex árum síðan.

OB er í níunda sæti dönsku deildarinnar, ellefu stigum fyrir ofan fallsæti.
Athugasemdir
banner
banner
banner