Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 11. maí 2021 19:30
Ívan Guðjón Baldursson
Einkunnir Man Utd og Leicester: Söyuncu maður leiksins
Mynd: Getty Images
Leicester City tók stórt skref í Meistaradeildarbaráttunni í kvöld þegar liðið lagði Manchester United að velli á Old Trafford.

Sky Sports hefur gefið leikmönnum einkunnir og metur sem svo að tyrkneski miðvörðurinn Caglar Soyuncu hafi verið besti maður leiksins. Soyuncu gerði sigurmarkið með skalla eftir hornspyrnu á 66. mínútu.

Söyuncu fær 7 í einkunn rétt eins og flestir liðsfélagar sínir, en aðeins tveir leikmenn Man Utd fengu svo háa einkunn. Þeir eru Mason Greenwood og Axel Tuanzebe.

Ayoze Perez þótti versti maður vallarins með 5 í einkunn.

Man Utd: De Gea (6), Williams (6), Bailly (6), Tuanzebe (7), Telles (6), Matic (6), Mata (6), Van de Beek (6), Diallo (6), Elanga (6), Greenwood (7).
Varamenn: Cavani (5), Rashford (5), Fernandes (5).

Leicester: Schmeichel (6), Castagne (7), Fofana (7), Söyuncu (7), Albrighton (7), Ndidi (6), Tielemans (7), Thomas (7), Perez (5), Iheanacho 7), Vardy (6).
Varamenn: Maddison (6), Choudhury (5).
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner