Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   þri 11. maí 2021 23:30
Ívan Guðjón Baldursson
Leikmenn Man City fögnuðu á Twitter
Mynd: EPA
Manchester City varð í kvöld Englandsmeistari í fimmta sinn á síðasta áratugi.

Sigurinn var sérstaklega sætur í ár þar sem titillinn kom í hús þegar nágrannarnir í Manchester United töpuðu heimaleik gegn Leicester City. Man Utd getur ekki lengur náð Man City á stigum og eru lærisveinar Pep Guardiola því Englandsmeistarar á ný.

Leikmenn City fögnuðu titlinum og birtu færslur á samfélagsmiðlum. Þeir geta verið sáttir enda sýndu þeir yfirburði á tímabilinu.

Þeir munu vafalaust mæta aftur hungraðir til leiks á næstu leiktíð þegar titilbaráttan verður harðari.


















Athugasemdir
banner
banner