Grindavík er búið að staðfesta komu Odds Inga Bjarnasonar að láni út tímabilið frá KR.
Oddur Ingi var lánaður til Grindavíkur í fyrra og stóð sig mjög vel þar sem hann skoraði 7 mörk í 17 leikjum í Lengjudeildinni.
Oddur Ingi er fæddur um aldamótin og skoraði 6 mörk í 13 leikjum með KV í 3. deildinni fyrir tveimur sumrum.
Oddur kom við sögu í síðasta leik KR í Pepsi Max-deildinni.
Hann var þá fyrsti maður inn af bekknum þegar KR lenti 1-3 undir á heimavelli gegn KA. Hann kom inn á 81. mínútu og gat lítið gert til að laga stöðuna.
Ljóst er að Oddur er mikill liðsstyrkur fyrir Grindavík sem byrjaði Íslandsmótið á flottum 3-1 sigri gegn sterku liði ÍBV í Lengjudeildinni.
Guess who's back!
— UMFG - Ungmennafélag Grindavíkur (@umfg) May 11, 2021
Oddur Ingi mætir aftur til Grindavíkur. Kemur á láni frá KR.
Frábærar fréttir fyrir Grindavík og Lengjudeildina!
Áfram Grindavík! 💛💙 #lengjudeildin #fotboltinet pic.twitter.com/ouKGKL8BOe
Athugasemdir