Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mið 11. maí 2022 11:07
Elvar Geir Magnússon
Heimild: BBC 
Man City og Liverpool gætu þurft að leika úrslitaleik um titilinn
Staðan í ensku úrvalsdeildinni.
Staðan í ensku úrvalsdeildinni.
Mynd: BBC
Jurgen Klopp og Pep Guardiola.
Jurgen Klopp og Pep Guardiola.
Mynd: EPA
Umspilsleikur til að ákveða Englandsmeistara? Fjarlægur möguleiki, en samt ekki eins fjarlægur og maður heldur...

Manchester City er öruggt með Englandsmeistaratitilinn ef liðið fær sjö stig úr síðustu þremur leikjum sínum, liðið mætir Wolves í kvöld, en það er enn möguleiki á að leika þurfi úrslitaleik um titilinn.

BBC fjallar um það að samkvæmt reglugerð deildarinnar þá verður leikinn hreinn úrslitaleikur til að ákveða meistara ef liðin eru jöfn að stigum, markatölu, skoruðum mörkum og innbyrðis viðureignum.

Báðir innbyrðis leikir liðanna enduðu 2-2 svo það er hnífjafnt þar.

Einn tapleikur hjá Manchester City gerir það að verkum að Liverpool jafnar þá að stigum ef þeir vinna sína síðustu leiki og City vinnur hina tvo.

Raunhæfur möguleiki, förum þá í markatöluna...

Ef Liverpool fær þremur stigum meira en City í leikjunum sem eru eftir þá ræðst titillinn á markatölu. City hefur skorað þremur mörkum meira. En ef Liverpool vinnur það upp þá ræðst titillinn á mörkum skoruðum og bæði lið hafa sem stendur skorað 89 mörk.

Ef allt er hnífjafnt þá verður leikinn úrslitaleikur.

Ekki er vitað á hvaða degi sá leikur myndi fara fram en þar sem landsleikjagluggi verður í byrjun júní er líklegast að spilað yrði 25. maí, þremur dögum áður en Liverpool mætir Real Madrid í úrslitaleik Meistaradeildarinnar.

Lokaleikir Liverpool og Man City í deildinni
11. maí: Wolves - Man City
15. maí: West Ham - Man City
17. maí: Southampton - Liverpool
22. maí: Man City - Aston Villa
22. maí: Liverpool - Wolves
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 24 5 5 82 26 +56 77
2 Man City 33 23 7 3 80 32 +48 76
3 Liverpool 34 22 8 4 75 34 +41 74
4 Aston Villa 34 20 6 8 71 50 +21 66
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Man Utd 33 16 5 12 51 50 +1 53
7 Newcastle 33 15 5 13 69 54 +15 50
8 West Ham 34 13 9 12 54 63 -9 48
9 Chelsea 32 13 8 11 61 57 +4 47
10 Bournemouth 34 12 9 13 49 60 -11 45
11 Brighton 33 11 11 11 52 54 -2 44
12 Wolves 34 12 7 15 46 54 -8 43
13 Fulham 34 12 6 16 50 54 -4 42
14 Crystal Palace 34 10 9 15 44 56 -12 39
15 Brentford 34 9 8 17 52 59 -7 35
16 Everton 34 11 8 15 36 48 -12 33
17 Nott. Forest 34 7 9 18 42 60 -18 26
18 Luton 34 6 7 21 47 75 -28 25
19 Burnley 34 5 8 21 37 69 -32 23
20 Sheffield Utd 34 3 7 24 33 92 -59 16
Athugasemdir
banner