Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 11. maí 2022 13:05
Elvar Geir Magnússon
Rob Edwards tekur við Watford (Staðfest)
Rob Edwards er að taka við Watford.
Rob Edwards er að taka við Watford.
Mynd: Getty Images
Forest Green Rovers hefur staðfest að stjóri félagsins, Rob Edwards, hafi látið af störfum til að taka við Watford.

Roy Hodgson hættir sem stjóri Watford eftir tímabilið en liðið er fallið niður í Championship-deildina.

Edwards er 39 ára og er fyrrum varnarmaður Wolves og velska landsliðsins. Hann tók við Forest Green síðasta sumar og stýrði liðinu til sigurs í ensku D-deildinni í síðustu viku. Þar áður þjálfaði hann U16 landslið Englands.

Hann verður áttundi fastráðni stjóri Watford síðan í upphafi árs 2018.

Eigandi Forest Green ekki sáttur
Dale Vince, eigandi Forest Green Rovers, er mjög ósáttur við það hvernig Watford tók Edwards af þeim. Hann segir Watford hafa sett sig í samband við stjórann án þess að fá leyfi félagsins.

„Fólk er sífellt að koma og fara í fótboltanum. Mikilvægast er með hvaða hætti fólk gerir það. Ég sagði Rob að ég væri vonsvikinn með framkomuna og hann baðst afsökunar. Þetta er sárt og ég óska honum alls hins besta. En þetta var lélegt af hálfu Watford og Rob líka," segir Vince. „Rétta leiðin er að setja sig í samband við okkur, það á að vera fyrsta skrefið. Watford ráðlagði Rob að segja okkur ekki frá því að þeir hefðu rætt við hann."
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 24 5 5 82 26 +56 77
2 Man City 33 23 7 3 80 32 +48 76
3 Liverpool 34 22 8 4 75 34 +41 74
4 Aston Villa 34 20 6 8 71 50 +21 66
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Man Utd 33 16 5 12 51 50 +1 53
7 Newcastle 33 15 5 13 69 54 +15 50
8 West Ham 34 13 9 12 54 63 -9 48
9 Chelsea 32 13 8 11 61 57 +4 47
10 Bournemouth 34 12 9 13 49 60 -11 45
11 Brighton 33 11 11 11 52 54 -2 44
12 Wolves 34 12 7 15 46 54 -8 43
13 Fulham 34 12 6 16 50 54 -4 42
14 Crystal Palace 34 10 9 15 44 56 -12 39
15 Brentford 34 9 8 17 52 59 -7 35
16 Everton 34 11 8 15 36 48 -12 33
17 Nott. Forest 34 7 9 18 42 60 -18 26
18 Luton 34 6 7 21 47 75 -28 25
19 Burnley 34 5 8 21 37 69 -32 23
20 Sheffield Utd 34 3 7 24 33 92 -59 16
Athugasemdir
banner