Keflavík var að fá sóknarmanninn Vigdísi Lilju Kristjánsdóttur á láni frá Breiðabliki.
Vigdís Lilja, sem er fædd árið 2005, er gríðarlega efnilegur leikmaður sem er nú þegar komin með ágætis reynslu í meistaraflokki. Á síðustu leiktíð spilaði hún með Augnabliki í Lengjudeildinni og skoraði sjö mörk í tíu leikjum.
Á þessu tímabili hefur hún leikið einn leik með Breiðabliki í Bestu deildinni; hún kom inn á sem varamaður í 3-0 sigri á Stjörnunni á dögunum.
Keflavík hefur farið mjög vel af stað og er með sex stig eftir þrjár umferðir.
Vigdís Lilja getur þreytt frumraun sína með Keflavík gegn Aftureldingu á föstudag.
Athugasemdir