Lengi vel hefur sú umræða átt sér stað að það megi ekki snerta markverði, hvað þá inn í markteig. Þó fjölmörg dæmi séu um hið andstæða, að þeir séu allt annað en heilagir, virðist sem David Raya hafi tekið geislabauginn með sér út á völl þegar Arsenal lagði West Ham United um liðna helgi.
Eins og öll þau sem fylgjast með ensku úrvalsdeildinni vita þá vann Arsenal gríðarlega nauman 1-0 sigur á West Ham United í gær. Sigurinn þýðir að Skytturnar eru við það að verða Englandsmeistari í fyrsta sinn síðan guð má vita hvenær og Hamrarnir eiga á að hættu að falla.
Það sem meira er, Hamrarnir skoruðu undir lok leiksins mark sem hefði tryggt þeim gífurlega mikilvægt stig. Markið var hins vegar dæmt af þar sem dómarateymi leiksins mat svo að brotið hefði verið á Raya.
Þegar atvikið er skoðað aftur er erfitt að mótmæla því að það sé brotið á Raya. Það eru hins vegar fleiri brot að eiga sér stað, í báðar áttir. Það má því segja að atvikið - og sú langa pása sem var í kjölfarið meðan myndbandsdómari leiksins skoðaði atvikið frá öllum mögulegum sjónarhornum - sé lýsandi fyrir ensku úrvalsdeildina í ár.
Þó það sé ekki erfitt að færa rök fyrir því að brotið hafi verið á Raya þá eru mörg ósátt þar sem mörg lið, Arsenal sérstaklega, hafa komist upp með að brjóta á markvörðum í hornspyrnum. Það er því helst til þessi skortur á samræmi sem fer í taugarnar á fólki.
Markvörðurinn fyrrverandi Peter Schmeichel er einn þeirra. Hann lét óánægju sína í ljós á Viaplay, þar sem hann var sérfræðingur.
„Það sem gerir mig virkilega reiðan er að Arsenal væri aldrei á toppi deildarinnar ef þetta er aukaspyrna. Þeir hafa skorað svo mörg mörk með því að blokka leikmenn, halda í leikmenn og fleira því um líkt.”
„Það tekur VAR fimm mínútur að skoða atvikið aftur og aftur. Það eitt og sér gerir það að verkum að þetta getur ekki verið aukaspyrna. Þetta er svo rangt. Ég skil ekki hvernig þetta er allt í einu aukaspyrna því það hefur ekki verið þannig fyrir neitt lið til þessa á leiktíðinni. Þessi ákvörðun í dag er svo röng á svo marga vegu.”
Rob Green, sem stóð lengi vel á milli stanganna hjá West Ham, kallaði ákvörðunina þá stærstu á tímabilinu. Það er ekki annað hægt að segja en hann hafi nokkuð til síns máls.
Fyrrverandi dómarinn Darren Cann segir að ákvörðunina rétta.
„Þetta er brot, Pablo Felipe heldur í höndina á Raya. Jafnframt er Jean Clear-Todibo að toga í treyjuna hjá Raya. Ég veit þetta er synd fyrir West Ham en þetta er brot. Staðreyndin er sú að Pablo heldur Raya og kemur í veg fyrir að hann komist að boltanum.”
Eflaust verður fjallað um þetta atvik næstu vikur ef ekki mánuði. Hvað þá ef Arsenal stendur uppi sem meistari og West Ham fellur. Það breytir hins því ekki að Raya var þarna að halda hreinu í 18 sinn í deildinni og hefur aðeins fengið á sig 26 mörk í 36 leikjum. Meira um það síðar.
Runólfur Trausti Þórhallsson er menntaður markmannsþjálfari og mun birta vikulega pistla tengda markvörslu. Allt frá Bestu deildum karla og kvenna yfir til Meistaradeildar Evrópu.




