Bayern á eftir ungstirni Bournemouth - Konate eftirsóttur
   mán 11. maí 2026 09:14
Elvar Geir Magnússon
Sjáðu atvikið: Stærsta VAR ákvörðun sögunnar?
Chris Kavanagh dómari með West Ham mótmæli kringum sig.
Chris Kavanagh dómari með West Ham mótmæli kringum sig.
Mynd: EPA
Afdrifaríkasta ákvörðunin í sögu myndbandsdómgæslu í ensku úrvalsdeildinni var tekin á fjórum mínútum og 11 sekúndum í leik West Ham og Arsenal í gær.

Stuðningsmenn horfðu með öndina í hálsinum á Chris Kavanagh í VAR skjánum horfa á atvikið aftur og aftur áður en hann tók loks ákvörðunina. Jöfnunarmark í uppbótartíma var dæmt af West Ham og Arsenal vann 1-0 útisigur, gríðarlega mikilvægan sigur í titilbaráttu ensku úrvalseildarinnar. West Ham hinsvegar missti af stigi í baráttunni um að halda lífi í ensku úrvalsdeildinni.

BBC veltir því fyrir sér hvort um stærsta VAR atvik sögunnar hafi verið að ræða.

Klárt að það var rétt ákvörðun að dæma markið af
Darren Cann, fyrrum aðstoðardómari, í ensku úrvalsdeildinni segir að það hafi verið klárlega tekin rétt ákvörðun með að dæma mark West Ham af því Pablo hjá West Ham hélt í handlegginn á David Raya, markverði Arsenal. Þá hafi Todibo togað í treyju hans einnig.

„Þetta er þungt fyrir West Ham en þetta er brot, það er rétt niðurstaða. Pablo heldur í handlegg Raya þegar hann er að reyna að grípa boltann, það er klárlega haft áhrif á hann," segir Cann.


Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 38 26 7 5 71 27 +44 85
2 Man City 38 23 9 6 77 35 +42 78
3 Man Utd 38 20 11 7 69 50 +19 71
4 Aston Villa 38 19 8 11 56 49 +7 65
5 Liverpool 38 17 9 12 63 53 +10 60
6 Bournemouth 38 13 18 7 58 54 +4 57
7 Sunderland 38 14 12 12 42 48 -6 54
8 Brighton 38 14 11 13 52 46 +6 53
9 Brentford 38 14 11 13 55 52 +3 53
10 Chelsea 38 14 10 14 58 52 +6 52
11 Fulham 38 15 7 16 47 51 -4 52
12 Newcastle 38 14 7 17 53 55 -2 49
13 Everton 38 13 10 15 47 50 -3 49
14 Leeds 38 11 14 13 49 56 -7 47
15 Crystal Palace 38 11 12 15 41 51 -10 45
16 Nott. Forest 38 11 11 16 48 51 -3 44
17 Tottenham 38 10 11 17 48 57 -9 41
18 West Ham 38 10 9 19 46 65 -19 39
19 Burnley 38 4 10 24 38 75 -37 22
20 Wolves 38 3 11 24 27 68 -41 20
Slapp
banner