Það var rosaleg dramatík í boltanum um helgina og fólk er kannski enn að jafna sig. Hér er stuttur og hnitmiðaður slúðurpakki sem hjálpar fólki að koma sér niður á jörðina.
Everton hefur verið í viðræðum við varnarmanninn John Stones (31) um mögulega endurkomu hans til félgasins þegar hann yfirgef Manchester City í sumar. (Football Insider)
Manchester United segir ekkert til í því að Amad Diallo (23) muni yfirgefa félagið í sumar. (Teamtalk)
Newcastle færist nær því að fá enska miðjumanninn Lewis Miley (20) til að skrifa undir nýjan langtímasamning. (Sun)
Ítalski bakvörðurinn Andrea Cambiaso (26) er mögulegur kostur fyrir Arsenal, Liverpool og Manchester United en Juventus gæti gert hann fáanlegan í sumar. (Teamtalk)
Atletico Madrid hefur áfram áhuga á brasilíska miðjumanninum Joao Gomes (25) frá Wolves en er ekki tilbúið að borga meira en 40 milljónir evra fyrir hann. (Marca)
Skoski miðjumaðurinn Bailey Rice (19) mun yfirgefa Rangers í sumar og Aston Villa er meðal enskra úrvalsdeildarfélaga sem hafa áhuga á að fá hann. (Football Insider)
Liverpool hefur rætt við Real Madrid um stutta stjóratíð Xabi Alonso hjá spænska stórliðinu þar sem enska félagið skoðar hvort hann sé efni í framtíðarstjóra á Anfield. (AS)
Ipswich Town er að teikna upp lista af mögulegum stjórakostum ef Kieran McKenna verður boðið að taka við öðru úrvalsdeildarliði í sumar. (Sun)


