Fotbolti.net
11.05.26 - 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Jói útherji

Monchi að snúa aftur í spænska boltann

Monchi að snúa aftur í spænska boltann
Canon

Mynd: EPA

Monchi er nálægt því að vera ráðinn sem nýr yfirmaður fótboltamála hjá Espanyol eftir að hafa starfað hjá Aston Villa síðustu ár.
Monchi hefur skapað sér afar vinsælt nafn í fótboltaheiminum og fengið mikið lof fyrir vel unnin störf hjá Sevilla, AS Roma og nú síðast hjá Aston Villa. Hann starfaði sem yfirmaður fótboltamála í tvö ár hjá Villa og var svo færður í ráðgjafahlutverk eftir slæma byrjun liðsins á yfirstandandi tímabili.

Hann starfaði hjá Sevilla í rúmlega 20 ár eftir að hafa verið varamarkvörður félagsins allan ferilinn, þar til hann lagði hanskana á hilluna 30 ára gamall og tók skömmu seinna við sem yfirmaður fótboltamála.

Monchi hefur oft á tíðum verið orðaður við ýmis stórveldi í evrópska boltanum en hann vill aðeins taka við verkefnum sem hann telur vera nægilega áhugaverð og spennandi fyrir sig.

Talið er að ráðningin á Monchi velti á því hvort Espanyol heldur sæti sínu í La Liga, efstu deild spænska boltans, eða ekki.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Real Sociedad2+46
1Barcelona38+5994
2Barcelona2+46
2Real Madrid38+4286
3Villarreal38+2672
3Atletico Madrid2+44
4Atletico Madrid38+1869
4Girona2+14
5Betis38+1160
5Levante2+14
6Celta38+554
6Real Madrid1+33
7Eibar1+13
7Getafe38-651
8Rayo Vallecano38-350
8Leganes1+13
9Valencia38-949
9Valencia1+13
10Real Sociedad38-246
10Betis2-13
11Espanyol38-1246
11Espanyol101
12Athletic38-1545
12Sevilla101
13Elche38-843
13Athletic101
14Getafe101
14Alaves38-1243
15Deportivo2-31
15Sevilla38-1443
16Celta2-20
16Osasuna38-642
17Malaga2-20
17Mallorca38-1042
18Levante38-1442
18Alaves2-30
19Villarreal2-40
19Girona38-1641
20Las Palmas2-50
20Oviedo38-3429
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.