Bayern á eftir ungstirni Bournemouth - Konate eftirsóttur
   mán 11. maí 2026 09:39
Elvar Geir Magnússon
Setur spurningamerki við VAR ákvörðunina sem Arsenal fagnaði
Stuðningsmenn Arsenal fagna ákvörðuninni.
Stuðningsmenn Arsenal fagna ákvörðuninni.
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Flestir sparkspekingar og sérfræðingar eru á því að Chris Kavanagh dómari hafi tekið rétta ákvörðun með því að dæma jöfnunarmark West Ham gegn Arsenal ógilt í gær.

Callum Wilson jafnaði í 1-1 í uppbótartíma en eftir langa VAR skoðun Chris Kavanagh dómara var niðurstaðan sú að brotið hafi verið á David Raya, markverði Arsenal.

Mikið er rætt um þetta risastóra atvik enda hefur það gríðarleg áhrif á titilbaráttuna og einnig fallbaráttuna þar sem West Ham situr í fallsæti.

Shay Given, fyrrum markvörður Newcastle, setur spurningamerki við þessa dómgæslu.

„Það sem pirrar mig er að við höfum séð margoft séð hjá Arsenal á þessu tímabili farið í markverði og varnarmenn en markið látið standa. Allir eru pirraðir yfir ósamræmi í dómgæslu. Af hverju eru sum mörk látin standa en þetta var dæmt af? Það er svo margt í húfi bæði neðst í deildinni og alveg á toppnum," segir Given.

„Svo er það annað; Gabriel er að halda í andstæðing, Ödegaard líka. Trossard er að halda áður en það er brotið á Raya. Hvenær ákveður dómari hvaða brot hann velur, og sleppir broti sem var á undan?"

Given var sérfræðingur í Match of the Day en í sama þætti sagði Danny Murphy, fyrrum leikmaður Liverpool, að dómararnir hafi tekið rétta ákvörðun.

„Þetta er svona umdeilt því þetta er Arsenal. Það er ekki hægt að dæma eftir því sem gerðist í fortíðinni. VAR dómararnir sáu augljóst brot og þeir gátu ekki lokað augunum," segir Murphy.

Darren Cann, fyrrum aðstoðardómari, í ensku úrvalsdeildinni segir að það hafi verið klárlega tekin rétt ákvörðun með að dæma mark West Ham af því Pablo hjá West Ham hélt í handlegginn á David Raya, markverði Arsenal. Þá hafi Todibo togað í treyju hans einnig.

„Þetta er þungt fyrir West Ham en þetta er brot, það er rétt niðurstaða. Pablo heldur í handlegg Raya þegar hann er að reyna að grípa boltann, það er klárlega haft áhrif á hann," segir Cann.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 38 26 7 5 71 27 +44 85
2 Man City 38 23 9 6 77 35 +42 78
3 Man Utd 38 20 11 7 69 50 +19 71
4 Aston Villa 38 19 8 11 56 49 +7 65
5 Liverpool 38 17 9 12 63 53 +10 60
6 Bournemouth 38 13 18 7 58 54 +4 57
7 Sunderland 38 14 12 12 42 48 -6 54
8 Brighton 38 14 11 13 52 46 +6 53
9 Brentford 38 14 11 13 55 52 +3 53
10 Chelsea 38 14 10 14 58 52 +6 52
11 Fulham 38 15 7 16 47 51 -4 52
12 Newcastle 38 14 7 17 53 55 -2 49
13 Everton 38 13 10 15 47 50 -3 49
14 Leeds 38 11 14 13 49 56 -7 47
15 Crystal Palace 38 11 12 15 41 51 -10 45
16 Nott. Forest 38 11 11 16 48 51 -3 44
17 Tottenham 38 10 11 17 48 57 -9 41
18 West Ham 38 10 9 19 46 65 -19 39
19 Burnley 38 4 10 24 38 75 -37 22
20 Wolves 38 3 11 24 27 68 -41 20
Slapp
banner
banner