Real Madrid er búið að staðfesta kaup á franska miðjumanninum Aurelien Tchouameni frá AS Mónakó.
Tchouameni er 22 ára varnartengiliður sem hefur verið að gera frábæra hluti undanfarin misseri.
Hann er búinn að festa sig í sessi sem einn af betri miðjumönnum heims þar sem hann er búinn að vinna sér inn byrjunarliðssæti í franska landsliðinu og hefur verið eftirsóttur af stærstu knattspyrnufélögum Evrópu í allt sumar.
Tchouameni vildi alltaf ganga í raðir Real Madrid og hlustaði ekki á nein önnur tilboð þó að Liverpool og PSG hafi sýnt honum mikinn áhuga.
Tchouameni er partur af kynslóðaskiptum hjá Real Madrid þar sem hann og samlandi hans Eduardo Camavinga gætu reynst ansi öflugir saman á miðjunni.
Real Madrid er talið greiða um 100 milljónir evra fyrir Tchouameni.