Suður-Afríkumenn áttu hræðilegan opnunarleik á heimsmeistaramótinu gegn gestgjöfum Mexíkó í kvöld. DAZN gaf tveimur leikmönnum falleinkunn.
Julian Quinones og Raul Jimenez skoruðu mörk Mexíkóa í fjörugum leik.
Í raun var ótrúlegt að aðeins tvö mörk hafi verið skoruð, en rauðu spjöldin voru fleiri en mörkin, eða þrjú talsins.
Yaya Sithole, miðjumaður Suður-Afríku, og varamaðurinn Themba Zwane fengu verstu einkunn hjá liðinu. Zwane fær 3,8 á meðan Sithole fékk 4,2.
Quinones var maður leiksins með 8,4 í einkunn en næstur á eftir honum var Jimenez með 8.
Mexíkó: Raúl Rangel (7.0), Israel Reyes (6.8), César Montes (5.8), Johan Vásquez (6.9), Jesús Gallardo (6.9), Érik Lira (7.0), Brian Gutiérrez (5.9), Álvaro Fidalgo (6.3), Roberto Alvarado (7.5), Julián Quiñones (8.4), Raúl Jiménez (8.0)
Varamenn:Luis Chávez (6.6), Gilberto Mora (6.4), Edson Álvarez (6.5), Armando González (6.2), Alexis Vega (6.3)
Suður-Afríka: Ronwen Williams (6.8), Khuliso Mudau (5.9), Ime Okon (5.8), Nkosinathi Sibisi (5.8), Mbekezeli Mbokazi (6.3), Aubrey Modiba (5.7), Yaya Sithole (4.2), Teboho Mokoena (6.0), Jayden Adams (5.8), Iqraam Rayners (5.7), Lyle Foster (5.8)
Varamenn:Thalente Mbatha (5.8), Themba Zwane (3.8), Oswin Appollis (5.9), Evidence Makgopa (5.6)
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!




