Fotbolti.net
11.07.16 - 22:15
Alexander Freyr Tamimi

Hemmi Hreiðars: Snýst ekki um hvernig þú ert að spila

Auglýsing
Hemmi Hreiðars var ánægður með stigin þrjú.

Hemmi Hreiðars var ánægður með stigin þrjú.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Hermann Hreiðarsson, þjálfari Fylkis, var að vonum ánægður eftir 4-1 sigur sinna manna gegn Þrótti í Pepsi-deild karla í kvöld.

Hermann hélt upp á 42 ára afmæli sitt í dag og fékk heldur betur góða afmælisgjöf frá sínum mönnum sem hafa nú unnið tvo deildarleiki í röð. Með sigri kvöldsins fór Fylkir upp fyrir Þrótt í 11. sæti deildarinnar.
„Þetta var frábært, við þurftum verulega á þessum stigum að halda og við vitum það alveg. Við vorum alls ekki kátir með fyrri hálfleikinn og mér fannst við bara vera slappir, en við breyttum aðeins til og gengum á lagið. Ég er hrikalega sáttur með seinni hálfleikinn, þetta snýst ekki aðallega um hvernig þú ert að spila núna, þetta snýst um að fá þrjú stig,\" sagði Hermann við Fótbolta.net að leik loknum.

„Fyrsti sigurinn var lengi að koma og svo loksins þegar hann datt inn í síðustu umferð og við brutum ísinn, það er frábært að fylgja því eftir með stórum sigri í dag. Þetta leit ekki frábærlega út, en við töluðum um það að ef þú nærð að tengja 2-3 sigra rýkurðu svolítið upp töfluna. Það eru tveir sigrar komnir þannig við erum kátir.\"

Eitt af mörkum Fylkis kom eftir langt innkast og annað slíkt hefði getað komið fyrr í leiknum. Aðspurður hvort Hermann væri að sækja innblástur í mörk íslenska landsliðsins á EM 2016 sagði hann svo ekki vera.

„Við erum svosum búnir að skora allt mótið, eða við skoruðum í fyrsta og öðrum leik úr innkasti, en það hefur vantað smá greddu. Það kom í dag sem er frábært, við skoruðum flott mörk í dag sem gefur sjálfstraust.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.