Fotbolti.net
20.10.26 - 13:05
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

„Þetta eru bara staðreyndir hjá honum"

Lisandro Martinez.

Lisandro Martinez.

Canon

Mynd: EPA

Lisandro Martínez, varnarmaður Manchester United, hefur verið mikið til umræðu eftir að hann gagnrýndi stjórnarhættina hjá United eftir tap gegn Atletico Madrid í Meistaradeildinni núna á dögunum.

Argentínumaðurinn gagnrýndi meðal annars Jason Wilcox, yfirmann fótboltamála hjá félaginu. Martínez sagðist hafa búist við meiri fjárfestingu við leikmannahópinn og að hann hefði vænst meira af Wilcox.
Martínez biðst afsökunar og fær sekt
TENGT EFNI

Martínez biðst afsökunar og fær sekt

Rætt var um málið í Enski boltinn hlaðvarpinu og hvort gagnrýnin ætti rétt á sér.

„Það er aldrei spurning," sagði Sölvi Haraldsson, stuðningsmaður Manchester United. „Hann hefði jafnvel bara mátt bæta við."

„Þetta eru bara staðreyndir hjá honum. Það getur enginn heilsteyptur maður sagt mér að það sem hann var að gagnrýna sé búið að vera í lagi hjá United. Gagnrýnin á fullkomlega rétt á sér."

Haraldur Örn Haraldsson tók undir það. „Við höfum séð hvernig gengið hefur verið hjá United síðustu árin."

„United er ekki með neina stefnu," sagði Sölvi.

Hægt er að hlusta á alla umræðuna í spilaranum hér fyrir neðan og á öllum hlaðvarpsveitum.
Jason Wilcox, yfirmaður fótboltamála hjá Manchester United.

Jason Wilcox, yfirmaður fótboltamála hjá Manchester United.

Canon

Mynd: EPA

Enski boltinn - Best rekna félagið í deildinni?

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.