Fotbolti.net
20.10.26 - 16:00
Enski boltinn

Besta dæmið um af hverju Brighton er besta rekna félagið

Brighton fagnar marki.

Brighton fagnar marki.

Canon

Mynd: EPA

„Þetta var bara rándýr á eftir bráðinni," sagði Haraldur Örn í Enski boltinn hlaðvarpinu þegar rætt var um leik Brighton og Crystal Palace.

Brighton burstaði erkifjendur sína 5-0, en staðan var orðin 3-0 eftir rúmar 10 mínútur í leiknum.
Dauðskammast sín eftir skellinn í Brighton
TENGT EFNI

Dauðskammast sín eftir skellinn í Brighton

Brighton hefur farið gríðarlega vel af stað á tímabilinu; liðið situr í þriðja sæti, hefur skorað mest og fengið fæst mörk á sig.

„Þegar maður horfir á Brighton sem heild þá er þetta best rekna félagið í enska boltanum," sagði Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson í þættinum.

„Besta dæmið um það er að þeir hafa verið með þrjá stjóra á undanförnum árum - Graham Potter, Roberto De Zerbi og Fabian Hurzeler - og þeir halda alltaf áfram sömu braut og halda áfram að bæta sig."

Eigandinn Tony Bloom er pókerspilari en hann á líka Hearts í Skotlandi og Union Saint-Gilloise í Belgíu. Öll félögin í hans eigu hafa náð frábærum árangri síðustu ár. Félögin eru með ákveðna leikmannastefnu sem snýst um að kaupa leikmenn með góða tölfræði á góðu verði.

„Íslenskir fótboltasérfræðingar sáu ekki fyrir sér Tómas Bent Magnússon fara í Hearts en Tony Bloom sá það," sagði Haraldur Örn.

„Félagið er drullumerkilegt," sagði Sölvi Haraldsson um Brighton.

Alla umræðuna má hlusta á hér fyrir neðan og á öllum hlaðvarpsveitum.
Tony Bloom, eigandi Brighton.

Tony Bloom, eigandi Brighton.

Canon

Mynd: EPA

Fabian Hurzeler, stjóri Brighton.

Fabian Hurzeler, stjóri Brighton.

Canon

Mynd: EPA

Enski boltinn - Best rekna félagið í deildinni?

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.