„Ég vil bara ekki trúa því að það gerist"

Kom KA upp úr Lengjudeildinni 2016.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Valur endaði í 2. sæti Bestu deildarinnar og fór í bikarúrslit á síðasta tímabili.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Túfa var með Öster í toppbaráttu sænsku B-deildarinnar 2022 og 2023.

Mynd: Aðsend

Kom í KA fyrir tímabilið 2006.

Mynd: Leiknir.com - Matthías Ægisson

Túfa var þjálfari Vals þegar Mattías Kjeld þreytti frumraun sína.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðugleiki og þolinmæði bæði hjá KR og Fram undir stjórn Rúnars.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KR endði í 10. sæti í fyrra en Óskar Hrafn endaði með liðið í 2. sæti í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kom KA upp úr Lengjudeildinni 2016.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Fótbolti.net ræddi við KA-manninn Srdjan Tufegdzic en hann var í þrettán ár hjá KA áður en hann söðlaði um og tók við sem þjálfari Grindavíkur og síðar Vals. Hann er í dag búsettur í Malmö og ræddi aðeins um Bestu deildina í löngu viðtali. Þetta er síðasti hlutinn af þremur í viðtalinu við Túfa.

Kann ekki að vera í fríi - „Sakna þess að vera úti á velli"
„Ég er búinn að fylgjast vel með Bestu deildinni, sérstaklega eftir að ég kom heim frá Svíþjóð. Á þeim tímapunkti voru strákarnir, Stefan og Novak, svolítið í hóp hjá Val í meistaraflokki og spiluðu báðir leik í sumar. Ég fór á slatta af leikjum, var í fyrsta skipti í fríi frá minni vinnu, en kann ekki annað en að fara á völlinn og horfa á fótbolta. Strákarnir eru svo oft með kveikt á Sýn Sport hérna í Malmö og það er ekki bara fótbolti, heldur allar íþróttir."
„Hjartað slær aðeins meira fyrir KA og Val og þá sérstaklega KA. Ég er búinn að reyna horfa á flesta leiki og leiki sem skipta máli. Eftir svona mörg ár á Íslandi veit maður nákvæmlega hvað er að gerast."
„Það þarf ekki að vera mikill sérfræðingur þegar horft er í hvað hefur komið á óvart. Mitt gamla lið, Valur, við vorum að berjast um titilinn alveg þar til í lokin í fyrra og fórum í bikarúrslit. Núna er liðið í neðri hlutanum. Sama með Stjörnuna, skipta tvisvar um þjálfara, þeir voru líka í toppbaráttu í fyrra en enda núna í neðri hlutanum."
Stöðugleiki og þolinmæði lykillinn
„Það sem kemur mér ekki á óvart er það sem ég hef mesta trú á í fótbolta, það er stöðugleikinn. Þau félög sem halda trú á þjálfaranum, hafa trú á vinnunni sem er í gangi, þau lið eru alltaf að gera góða hluti. Víkingur hefur gert þetta í tæp tíu ár og eru svolítið út fyrir sviga í þessu. Við sjáum Fram, Rúnar hefur fengið traustið og það er alltaf skref fram á við. Eins með Óskar og KR. Það eru bestu dæmin og það er eins ef horft er 10-15 ár til baka. Heimir hjá FH, Rúnar Kristins hjá KR og Rúnar Páll hjá Stjörnunni. Stöðugleikinn og þolinmæðin eru lykill."
Vill ekki hugsa þá hugsun til enda
KA getur fallið á laugardaginn. Heldur þú að það gerist?
„Nei, ég vil bara ekki trúa því að það gerist. Ég horfði á Val á móti KA um helgina og vil ekki trúa því að KA falli. Þegar ég var hjá félaginu þá var uppgangurinn að byrja, það hefur verið vel haldið utan um þjálfara og leikmannahóp og ég trúi því bara ekki að liðið muni falla. Það tók 13 ár fyrir félagið að komast upp síðast."
„Það er pínu sorglegt að tvö lið utan af landi falla í ár. Núna eru tvö Akureyrarlið að berjast og fólkið utan AKureyrar þekkir ekki þennan grannaslag sem er risastór á íslenskum mælikvarða. Það er skelfilegt að annað af þessum liðum verður í Lengjudeildinni, væri miklu meira spennandi að hafa bæði lið í efstu deild. Ég held með mínum mönnum í KA um helgina og vona að liðið haldi sér í deildinni."
Fékk fyrsta leikinn undir stjórn Túfa
Undir stjórn Túfa þreytti Mattías Kjeld frumraun sína sem leikmaður Vals. Mattías sagði frá því í viðtali í síðustu viku að hann hefði fengið þau skilaboð að leikmenn vildu ekki að hann æfði með liðinu og hann hefði ekki það sem til þyrfti til að verða fótboltamaður.

Mattías Kjeld: Hann sagði mig vera með rangt hugarfar og að leikmenn vildu ekki hafa mig
Hann talaði um að attitjúd vesen hefði verið útskýringin sem hann fékk. Skynjaðir þú eitthvað svoleiðis þegar þú varst hjá Val?
„Ég þekki Matta líka í gegnum mína stráka, hann er fæddur 2009 og er einu ári eldri en Stefan. Hann hefur verið mikið heima hjá mér. Ég reynd á þessu ári hjá Val að bæta honum inn í meistaraflokkinn, hann var einn efnilegasti leikmaður félagsins og reyndi að hjálpa honum að taka fyrsta skrefið. Hann var smá óheppinn yfir veturinn 2024-25, var meiddur, en svo tók hann skref fyrir skref og fékk fyrsta leikinn."
„Það er vont að einhverjar svona yfirlýsingar koma, sérstaklega með unga leikmenn. Maður reynir alltaf að vinna þetta innan frá. Það eru ekki sömu tímar núna og fyrir 10-15 árum. Þú þarft að finna leiðir til að hjálpa strákum að verða betri."
„Það er flott hjá honum að sýna frábæran karakter, fór í Gróttu í Lengjudeildinni og átti gott tímabil. Ég veit að strákarnir mínir eru í góðu sambandi við hann. Það verður gaman að fylgjast með honum. En ég get ekki sagt neitt um það sem gerðist eftir að ég fór frá Val," segir Túfa.

Valur endaði í 2. sæti Bestu deildarinnar og fór í bikarúrslit á síðasta tímabili.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Túfa var með Öster í toppbaráttu sænsku B-deildarinnar 2022 og 2023.

Mynd: Aðsend

Kom í KA fyrir tímabilið 2006.

Mynd: Leiknir.com - Matthías Ægisson

Túfa var þjálfari Vals þegar Mattías Kjeld þreytti frumraun sína.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðugleiki og þolinmæði bæði hjá KR og Fram undir stjórn Rúnars.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KR endði í 10. sæti í fyrra en Óskar Hrafn endaði með liðið í 2. sæti í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


