Leiknir lá fyrir Fram í kvöld þegar liðin mættust í 11. umferð Inkasso deild karla. Sigurður Heiðar Höskuldsson þjálfari Leiknis kom í spjall eftir leik.
Lestu um leikinn: Fram 2 - 1 Leiknir R.
„Við sköpuðum okkur færi en boltinn fór ekki inn, við vorum að búa til sénsana en það er einhver gredda fyrir framan markið sem fær boltann ekki inn."
Sigurður var spurður út í félagsskiptagluggan sem opnaði núna í byrjun mánaðarins.
„Nei ég býst ekki við því, við erum með flottan hóp og ég er bara stolltur af því Leiknisliði sem var hér í dag."
Leiknir á leik við Aftureldingu í næsta leik og vilja eflaust koma sér aftur á strik.
Athugasemdir