Gareth Bale sat allan tímann á varamannabekknum í gær þegar Real Madrid vann 2-0 sigur á Alaves.
Bale hefur aðeins komið við sögu í 16 deildarleikjum á þessu tímabili og talað er um að félagið vilji selja hann í sumar.
Bale vakti athygli fyrir framgöngu sína á varamannabekknum í gær. Hann brosti þegar Zinedine Zidane, þjálfari Real, tók sína síðustu skiptingu og svo setti hann grímu yfir andlit sitt og virðist hafa tekið góðan lúr.
„Hann er tilbúinn fyrir sumarnæturnar á Íslandi," skrifar Gonzalo Zamorano við mynd af Bale á Twitter.
Real Madrid er með fjögurra stiga forskot á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar þegar þrjár umferðir eru eftir.
He is ready for the summer nights in Iceland pic.twitter.com/IC94I6pWBD
— Gonzalo Zamorano (@Gonza_zam9) July 11, 2020
Athugasemdir