Gianluigi Donnarumma, markvörður Ítalíu, var rétt í þessu að fá verðlaun fyrir að vera leikmaður Evrópumótsins.
Donnarumma, sem er að verða leikmaður Paris Saint-Germain í Frakklandi, er með gríðarlega reynslu þrátt fyrir að vera bara 22 ára gamall. Hann spilar frekar eins og hann sé tíu árum eldri en hann er í raun og veru.
Hann var gríðarlega góður í leiknum í kvöld og reyndist svo hetjan þegar í vítaspyrnukeppnina var komið.
Hann varði tvær vítaspyrnur, þar á meðal síðustu spyrnuna frá Bukayo Saka.
OFFICIAL: Gianluigi Donnarumma has been named Player of the Tournament.#EURO2020
— Squawka News (@SquawkaNews) July 11, 2021
Athugasemdir