Tristan Freyr spáir í næstu leiki HM

Tristan í leik með Gróttu.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Fer Noregur áfram?

Mynd: EPA

Argentína mætir Sviss í nótt.

Mynd: EPA

Tristan í leik með Gróttu.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Síðustu tveir leikir undanúrslita heimsmeistaramótsins eru framundan. Tristan Freyr Ingólfsson, sem hefur átt frábært tímabil með Gróttu, spáir í spilin fyrir leikina.
Noregur 3 - 2 England (21:00 í kvöld)
Þetta verður rosalegur leikur sem endar a óvæntum sigri Norðmanna í kvöld.
Harry Kane skorar bæði mörk Englendinga. Það fyrsta með því að snúa af sér svona 3 varnarmenn inni í teig og hamrar þessu síðan upp í nærhornið og það seinna af vítapunktinum.
Kristoffer Ajer stangar einn inn eftir hornspyrnu fyrir Noreg og Haalandskepnan heldur uppteknum hætti með 2 mörkum, 1 tap in og svo unlockaði hann langskotið á móti Brasilíu og hendir aftur í eina dúndru fyrir utan teig og rær áfram með Norðmennina í undanúrslit
Argentína 2 - 0 Sviss (01:00 í nótt)
Þessi leikur vinnst á því hvort liðið vilji þetta meira og ég held að Argentína vilji þetta töluvert meira.
Þetta verður blóðug barátta og mikið um spjöld og vafaatriði og liðin skilja jöfn eftir 90 mínútur.
Argentínumenn fá vítaspyrnu í framlengingunni þar sem lélegasta vítaskytta keppninnar Leo Messi klúðrar en nær frákastinu og rennir boltanum í netið og kemur sínum mönnum i forystu. Svo skömmu síðar sólar hann nokkra fyrir framan vítateig Sviss og kemur svo með einhverja galna stoðsendingu á Julian Alvarez og dregur sína menn í undanúrslit sem stefna heldur betur í átt að örðum HM titlinum í röð.