Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   fim 11. ágúst 2022 19:17
Ívan Guðjón Baldursson
Alex Smithies fyrstur til Leicester í sumar

Fabrizio Romano greinir frá því að markvörðurinn Alex Smithies sé í þann mund að verða fyrsti leikmaðurinn til að ganga í raðir Leicester City á tímabilinu.


Smithies er 32 ára gamall og æfði með Bournemouth í júlí en hann býr yfir gríðarlega mikilli reynslu úr Championship deildinni þar sem hann á yfir 200 leiki að baki fyrir Huddersfield, QPR og Cardiff.

Leicester vantar markvörð eftir söluna á Kasper Schmeichel til Nice í Frakklandi og mun Smithies berjast við Danny Ward og Daniel Iversen um byrjunarliðssæti.

Ward er 29 ára gamall landsliðsmaður Wales á meðan Iversen er 25 ára gamall Dani sem hefur verið aðalmarkvörður Preston á lánssamningi síðustu 18 mánuði.


Athugasemdir