Fotbolti.net
11.09.16 - 21:30
Alexander Freyr Tamimi

Ármann Smári: Gjafapakki frá okkur til þeirra

Auglýsing
Ármann Smári Björnsson.

Ármann Smári Björnsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ármann Smári Björnsson, varnarmaður ÍA, var skiljanlega svekktur eftir 3-1 tap liðsins gegn Þrótti í Pepsi-deildinni í kvöld.
„Við erum svosum ekkert farnir að spá neitt í Evrópusæti, við erum að reyna að ná okkar markmiðum, að gera betur en í fyrra. En þetta var náttúrulega bara skita hjá okkur frá A til Ö,\" sagði Ármann Smári við Fótbolta.net að leik loknum.

„Ég held við hefðum alveg getað skorað eitthvað af mörkum en þetta féll ekki í dag og þeir fengu einhver færi og skoruðu úr sínum færum, sem þeir gerðu vel.\"

Þróttarar hafa einungis unnið þrjá leiki í sumar og tveir þeirra hafa komið gegn Skagamönnum.

„Það hlýtur bara að vera gjafapakki frá okkur til þeirra, sjáum hvað þeir geta nýtt sér út úr því,\" sagði Ármann Smári.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.