Óvissa með Rashford - Gordon orðaður við Bayern og Arsenal - Mac Allister og Gomez orðaðir við brottför
Niðurtalningin – Húsvíkingurinn í brúnni á Akureyri
Niðurtalningin - Himnasending sem kom til Eyja í fyrra
Niðurtalningin - Nýliðar sem ætla að spila sambabolta
Fótbolta nördinn - Njarðvík vs Grindavík
Hugarburðarbolti GW 32 Rosaleg spenna!
Niðurtalningin - Nýir vindar blása um í dal draumanna
Enski boltinn - Stressið tekur öll völd
Innkastið - Ferskir nýliðar og vandræðagangur hjá Val
Útvarpsþátturinn - Óheppileg mistök og vítakall
Enski boltinn - Sjokkerandi lélegt hjá Liverpool
Útvarpsþátturinn - Stóri upphitunarþátturinn fyrir Bestu
Niðurtalningin - Skjöldurinn verður loksins kyrr
Hugarburðarbolti - Extra Fantasy fráhvörf
Besta spjallið: Damir, Jón Þór og Gummi Ben rýna í liðin
Niðurtalningin - Tímabilið í fyrra stórslys í Kópavoginum
Niðurtalningin - Pressan í Garðabænum meiri en áður
Fótbolta nördinn - SÝN vs Fótbolti.net
Niðurtalningin - Mikil spenna eftir stór leikmannakaup
Niðurtalningin - Skála í kampavíni af öðru tilefni í sumar
Útvarpsþátturinn - Máni og Jökull heimsækja Tómas
   sun 11. september 2016 15:30
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net
Matti Villa: Eiginlega of létt
Matthías fagnar í búningi Rosenborg.
Matthías fagnar í búningi Rosenborg.
Mynd: Rosenborg
Matthías Vilhjálmsson og félagar í Rosenborg hafa algjöra yfirburði í norsku úrvalsdeildinni en liðið náði þó ekki að komast í riðlakeppni Evrópudeildarinnar. Matthías Vilhjálmsson, leikmaður Rosenborg, var í viðtali í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu í gær.

„Það hefur gengið mjög vel í deildinni hjá okkur og þetta hefur eiginlega verið of létt. Það var þó mikil vonbrigði hjá okkur að ná ekki að komast í riðlakeppni í Evrópukeppninni," segir Matthías. „Það er gaman að vera í félagi eins og Rosenborg þar sem alltaf er keppt um titla."

Matthías hefur byrjað 13 leiki á tímabilinu og komið 8 sinnum inn sem varamaður. Er hann sáttur við sitt hlutskipti?

„Ég er nokkuð sáttur. Ég hefði samt viljað byrja fleiri Evrópuleiki og ég hef aðeins byrjað fimm leiki sem sóknarmaður. Það er búið að henda mér út um allt, á kantinn, sem djúpum á miðju og miðvörður. Ég er notaður í margar stöður og það er kannski þreytandi til lengdar en fínt að því leyti að þá fæ ég að spila meira."

Viðtalið má heyra í spilaranum hér að ofan en þar talar Matthías meðal annars um stöðu sína varðandi landsliðið.
Slapp
banner
banner