Fotbolti.net
11.09.18 - 18:21
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Aron Snær: Að markvörðurinn skori markið er enn verra

Auglýsing
Aron var svekktur í leikslok.

Aron var svekktur í leikslok.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aron Snær Friðriksson, markvörður Fylkis stóð í markinu hjá U21 landsliðinu gegn Slóvakíu á KR-vellinum í kvöld.
Aron átti frábæran leik í markinu, átti nokkrar góðar vörslur og varði líka vítaspyrnu, en þrátt fyrir hans frábæra leik þá féllu úrslitin ekki með íslenska liðinu. Markvörður Slóvakíu skoraði sigurmarkið eftir hornspyrnu í uppbótartíma.

„Maður getur ekki komið því í orð hvað þetta er svekkjandi og böggandi,\" sagði Aron við Fótbolta.net eftir leik.

„Við fengum fullt af færum, þeir fengu fullt af færum og þeir kláruðu einum fleira en við. Það að markvörðurinn skori sigurmarkið er enn verra.\"

„Við börðumst allir, við reyndum allir en hittum ekki á góðan dag. Við eigum að vinna þetta lið.\"

Vonir U21 landsliðsins að komast í lokakeppni EM urðu að engu með þessum úrslitum í Vesturbænum í dag.

Viðtalið er í heild sinni hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.