Bernard Challandes, þjálfari Kósóvó, er fremur undarlegur maður en hann virðist vera með mikla ástríðu. Hann bauð upp á skemmtileg viðbrögð í 5-3 tapinu gegn Englandi í gær.
Challandes var ósáttur við fyrri hálfleikinn en hann honum fannst að þriðja mark Englendinga hefði ekki átt að standa þar sem leikmaður Kósóvó lá óvígur á vellinum er markið kom.
Hann var svo brjálaður þegar flautað var til loka fyrri hálfleiks en hann vildi meina að Jadon Sancho hafi verið rangstæður þegar hann skoraði annað markið.
Challandes bölvaði í göngunum en tók svo eftir því að það var myndavél að fylgjast með honum. Viðbrögðin má sjá hér fyrir neðan.
When Kosovo manager Bernard Challandes notices the camera in the tunnel... 😂 #ENGKOS #legend pic.twitter.com/UvTVAN0kn8
— Holly Hamilton (@HollyHNews) September 10, 2019
England 5 × 1 Kosovo | Second goal for Sanchopic.twitter.com/c2FP3go8Rp
— ReleaseSky (@Releasesky2) September 10, 2019
Athugasemdir