Fotbolti.net
11.09.21 - 16:51
Daníel Smári Magnússon

Arnar Grétarsson: Mun sterkari á öllum hliðum fótboltans

Auglýsing
Arnar var feginn að landa þremur stigum og halda sér í Evrópubaráttu.

Arnar var feginn að landa þremur stigum og halda sér í Evrópubaráttu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Svona bara eins og ég átti kannski von á, að þeir myndu falla aðeins til baka og við yrðum töluvert meira með boltann í leiknum. Ég held við höfum verið með boltann 70% í leiknum og í raun og veru sköpuðum við okkur aragrúa af færum í fyrri hálfleik,'' sagði Arnar Grétarsson, þjálfari KA, aðspurður um sigurleik KA gegn Fylki í Pepsi Max-deild karla.
Arnar hélt áfram: „Við hefðum átt að koma okkur í mjög góða stöðu í hálfleik - gerðum það ekki og Fylkir eru með marga fljóta og flinka stráka fram á við, þannig að þér líður aldrei vel með að vera með vörnina mjög hátt á móti þessum strákum ef þeir ná að breika á þig og þess vegna var þetta leikur alveg út, af því að við náðum ekki að koma boltanum í netið, þó svo að við höfum verið mun sterkari á öllum hliðum fótboltans.''

Með sigrinum heldur KA liðið sér inni í Evrópubaráttunni og eiga stórleik gegn Val í næstu umferð.

„Við þurftum að hafa verulega fyrir þessum sigri í dag og ég er náttúrulega gríðarlega ánægður með það að sækja þessi þrjú stig og vera ennþá svona "semi" inní myndinni. Það er langsótt, en á meðan það er möguleiki að þá höldum við áfram.''

Nökkvi Þeyr Þórisson skoraði síðara mark KA í uppbótartíma og Arnar gladdist mjög fyrir hans hönd.

„Mjög ánægður að Nökkvi skoraði sitt fyrsta mark. Þar er strákur með gríðarlega hæfileika og maður er gríðarlega sáttur fyrir hans hönd. Vonandi kemur þetta í gang fyrir síðustu tvo leiki, það er strákur sem á alveg gríðarlega mikið inni,'' sagði Arnar Grétarsson.

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.