Metfjöldi hringdi sig inn „veika“ í vinnuna á Englandi

Það var glimrandi stemning á Boxpark fyrir utan Wembley.

Mynd: EPA

Það var glimrandi stemning á Boxpark fyrir utan Wembley.

Mynd: EPA
Englendingar eru í skýjunum eftir sigur Englands á Mexíkó í 16-liða úrslitum HM í nótt. Leikurinn hófst klukkan 2 að nóttu til á Englandi og kláraðist 4.
Áætlað er að yfir 500 þúsund manns hafi hringt sig inn „veika“ í vinnuna í morgun.
Áætlað er að yfir 500 þúsund manns hafi hringt sig inn „veika“ í vinnuna í morgun.

TENGT EFNI
Sjáðu HM mörkin: Allt það helsta úr sigri Englands í nótt
Börum var leyft að hafa opið lengur svo landsmenn gætu horft á leikinn í góðri stemningu með kranabjór við hendina.
Maður sem kallar sig Ollie, 29 ára, ræddi við The Standard eftir að hafa horft á leikinn á barnum og grínaðist með að það væri að hellast yfir sig flensa.
„Ég verð mjög veikur á næstu klukkustundum! Og það vill svo skemmtilega til að yfirmaður minn er líka veikur!" sagði Ollie kíminn.

England fans on Portobello Road this morning after the win against Mexico pic.twitter.com/ANzwQLMzW7
— London & UK Street News (@CrimeLdn) July 6, 2026