Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 11. september 2022 20:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Kæmi sér ekki á óvart ef Gilmour spili fyrir City eða Liverpool
Mynd: EPA
Hinn 21 árs gamli Billy Gilmour gekk til liðs við Brighton frá Chelsea í sumar en hann vildi spila undir stjórn Graham Potter sem yfirgaf Brighton stuttu síðar til að taka við Chelsea.

Gilmour var á láni hjá Norwich á síðustu leiktíð en gekk illa að festa sig í sessi í liðinu.

Pat Nevin fyrrum framherji Chelsea hefur þó mikla trú á Gilmour og telur að hann eigi vægast sagt bjarta framtíð fyrri sér.

„Eftir 4-5 ár yrði ég ekki hissa ef hann væri að spila á miðjunni hjá Man City, Liverpool eða Chelsea, hann er það tæknilega góður," sagði Nevin.


Athugasemdir
banner
banner
banner